16.05.2012 23:08
Baltic Force
Olíuskipið Baltic Force kom til Helguvíkur í dag. Dráttarbáturinn Magni og Hamar aðstoðuðu skipið að bryggju.

Magni dregur Baltic Force inn til hafnar í Helguvík.
Magni dregur Baltic Force inn til hafnar í Helguvík.
14.05.2012 14:44
Úthafskarfi 2012
05.05.2012 13:37
Fernanda strandar
Flutningaskipið Fernanda strandaði í innsiglingunni til Sandgerðis rúmlega átta í morgun.
Varðskipið Þór er á staðnum og dráttarbáturinn Magni er á leið á strandstað.
Varðskipið Þór er á staðnum og dráttarbáturinn Magni er á leið á strandstað.
03.05.2012 18:24
OTUR ÍS
Strandveiðibáturinn Otur ÍS siglir út frá Reykjavík !
Rússneskur togari fer frá Skarfabakka eftir að hafa tekið um borð troll frá Hampiðjunni !
Flottroll tekið um borð á rússneskann togara við Skarfabakka !
02.05.2012 17:27
Reykjavíkurhöfn
Myndir teknar á hafnarsvæðinu síðustu daga.

Löndun stendur yfir úr Steinunni SF

Hvalskoðunarskipið Andrea liggur við bryggju í Reykjavík !

Rússneskur togari á leið til hafnar í Reykjavík. Undanfarna daga hafa margir rússneskir togarar nýtt þjónustu hjá Hampiðjunni sem hefur aðsetur við Skarfabakka.

Flutningaskipið Svanur að koma til landsins með timburfarm fyrir Byko !

Steinunn SF á útleið eftir að búið var að landa úr skipinu.

15.04.2012 16:54
Westsund
Dráttarbáturinn Westsund liggur við Skarfabakka í Reykjavík. Báturinn er nýkominn til Reykjavíkur með dýptkunarpramma fyrir Ístak. Pramminn hefur verið við vinnu í Noregi en er kominn aftur hingað til að vinna við framkvæmdir á Skarfabakka sem verður lengdur vegna stækkandi farþegaskipa sem koma til landsins.

Westsund liggur við Skarfabakka !

Höfrungur III AK á leið til olíutöku eftir að viðhaldsvinnu sem hefur staðið yfir í nokkrar vikur lauk. Höfrungur kemur við á Eyjagarði þar sem tekin verður olía áður en haldið verður til veiða.

Danska varðskipið Hvidbjorninn er að fara frá Reykjavík til að sinna eftirliti við Grænland .

Frystitogarinn Mánaberg ÓF kom til Reykjavíkur í morgun og lagðist að bryggju.

06.04.2012 14:44
Olíuskip í Hvalfirði !
Í gær kom olíuskip sem er við bryggju í Hvalfirði. Elbtank Germany er með stærri olíuskipum sem koma til landsins. Skipið er um 18 þús tonn að stærð og kemur hingað til að taka olíufarm úr olíutönkunum við Hvalstöðina í Hvalfirði. Fleiri myndir fylgja sem teknar hafa verið við hafnarsvæði Faxaflóahafna.

Olíuskip við bryggju í Hvalfirði !

Nokkur skip HB Granda þau Venus , Höfrungur III , Örfirisey , og Þerney hafa verið við bryggju í Reykjavík við ýmsar endurbætur og viðhald. Á myndinni sést Þerney þar sem hún liggur við Ægisgarð.

Olíuskipið Sten Baltic á siglingu til hafnar í Reykjavík ásamt hafnsögubátnum Jötni.

Margar nætur hafa farið á verkstæði Hampiðjunnar sem er við Skarfabakka í Reykjavík.

23.03.2012 20:20
Akamalik
Grænlenski frystitogarinn Akamalik fór frá Reykjavík í dag eftir að hafa landað og tekið olíu. Það sést vel á myndunum að skipið er eitt af allra glæsilegustu fiskiskipunum sem koma til Íslands til löndunar.

Akamalik á siglingu frá Reykjavík eftir að hafa tekið olíu !

Akamalik á siglingu frá Reykjavík !

Björgunaræfing var á ytri-höfninni í dag ! Slysavarnarskóli sjómanna var með nemendur á æfingu í dag um borð á Ásgrími S Björnssyni björgunarskipi Landsbjargar og þyrlu Landhelgisgæslunnar

16.03.2012 13:24
Venus við bryggju
Frystitogarinn Venus liggur við bryggju í Reykjavík. Skipið hefur tekið smávægilegri breytingu frá því að veltitankur var settur framan á skipið.

Venus HF við bryggju í Reykjavík.

Grásleppubáturinn Kiddi RE fer út frá Reykjavík í upphafi grásleppuvertíðar.

Mikil vinna hefur verið á athafnarsvæði Hampiðjunnar !
Venus HF við bryggju í Reykjavík.
Grásleppubáturinn Kiddi RE fer út frá Reykjavík í upphafi grásleppuvertíðar.
Mikil vinna hefur verið á athafnarsvæði Hampiðjunnar !
14.03.2012 21:33
Höfrungur III AK
Í dag fór Höfrungur III AK úr slipp og lagðist að Ægisgarði. Skipið fór að bryggju skrúfu og stýrislaust og fer því aftur innan skamms aftur upp í slipp. En á meðan það liggur við bryggju verður unnið að ýmsum lagfæringum á skipinu.

Höfrungur III á leið niður úr slippnum í Reykjavík.
Höfrungur III á leið niður úr slippnum í Reykjavík.
08.03.2012 18:06
Börkur NK
Í vikunni komu loðnuskipin Börkur NK og Kap VE til Reykjavíkur þar sem unnið var við veiðarfæri hjá netaverkstæði Hampiðjunnar.

Börkur NK við Skarfabakka !

Kap VE við Skarfabakka !

Börkur NK á siglingu frá Reykjavík !
Börkur NK við Skarfabakka !
Kap VE við Skarfabakka !
Börkur NK á siglingu frá Reykjavík !
28.02.2012 16:59
Tróndur í Götu
Færeyska loðnuskipið Tróndur i Götu kom til Reykjavíkur í dag. Skipið lagðist að Skarfabakka þar sem Hampiðjan er með þjónustuverkstæði.
Mynd tekin þegar Tróndur siglir inn Viðeyjarsundið !
23.02.2012 20:22
Ólafur Magnússon HU 54
Í dag komu netabátarnir Dagrún ST 12 og Ólafur Magnússon HU 54 til hafnar á Skagaströnd þar sem afla eftir daginn er landað.

Ólafur Magnússon HU 54 kemur til hafnar á Skagaströnd !

Dagrún ST 12 kemur til hafnar á Skagaströnd !
Ólafur Magnússon HU 54 kemur til hafnar á Skagaströnd !
Dagrún ST 12 kemur til hafnar á Skagaströnd !
- 1
- 2
Flettingar í dag: 21
Gestir í dag: 18
Flettingar í gær: 320
Gestir í gær: 129
Samtals flettingar: 647747
Samtals gestir: 219079
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 02:16:46